SKÁLDSAGA Á ensku

Treasure Island

Flestir þekkja söguna Treasure Island (Gulleyjan) eftir snillinginn Robert Louis Stevenson þó að fáir hafi kannski lesið hana í heild sinni, sem er synd því sagan er hreint stórkostleg og allir ættu að geta haft gaman af því að lesa hana. Sagan kom fyrst út sem framhaldssaga í tímaritinu Young Folks á árunum 1881 og 1882 og hét þá Treasure Island, or the mutiny of the Hispaniola. Kom hún svo út á bók ári síðar (1883) og hét þá bara Treasure Island.

Sagan er listavel skrifuð. Einkum þykir Stevenson hafa tekist að skapa réttu stemninguna sem slíkar sögur eiga að hafa alveg eins og honum tekst svo vel í sögunni The Strange Case of Dr. Jekyll and Mr. Hyde. Þá dregur hann upp trúverðugar persónur og atburðarásin er vel ígrunduð. Auk þess þykir sagan nokkuð óvenjuleg fyrir sinn tíma þar sem jafnvel helstu skúrkarnir eins og Long John Silver eru ekki bara teiknaðir upp sem hrein illmenni, heldur búa þeir yfir ákveðnum heiðarleika og hjartahlýju.

Sagan hefur lifað góðu lífi fram á þennan dag, bæði í bókum, sjónvarpi og kvikmyndum. Þá hefur hún haft gríðarleg áhrif á aðra rithöfunda og lagt línurnar fyrir ákveðinni frásagnargerð.


HÖFUNDUR:
Robert Louis Stevenson
ÚTGEFIÐ:
2016
BLAÐSÍÐUR:
bls. 236

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :